B R Y N J A R

F. 7.10.1963

Hin staðfasta vog

Listrænn

Skapgóður

Traustur

Heitur, heitur

 

 

Síða mánaðarins er rammgöldrótt:

Fyrri vefir mánaðarins:

exó

Vín og  matur

Tenerife

Jónína í Kína

Georg Jensen

Diesel

London

Akureyri

   

 

27. mars

Prinsinn Óttar er 20 ára í dag en lagði blátt bann við að birt yrði mynd af honum hér á síðunni. Við stormuðum á Indian Mango til að fá okkur tandoori-kjúkling sem við sáum fyrir okkur með rauðbleikri skorpu og safaríku kjöti, snarkandi úr eldofninum á sjóðheitri pönnu - en nei, moðsoðinn biti í kaldri stálskál og engin sósa. Afmælisbarnið var að vonum svekkt. Óttar hefur fengið margt góðra gjafa (m.a.s. reiðufé), t.d. Góða dátann Sveijk en búast má við að líf hans verði ekki samt eftir að hann hefur lesið þá rómuðu bók. Kaffiboð verður haldið honum til heiðurs á sunnudag á hefðbundum ammælistíma: 1500 og eru vinir, vandamenn og velunnarar hjartanlega velkomnir.

 

25. mars 2007

Fór að sjá leikritið Eilíf hamingja í Borgarleikhúsinu á sunnudagskveldið. Frábært leikrit, vel skrifað, djúpar pælingar um siðferðið, samskiptin og vinnuna, ástina og mannlífið. Leikararnir voru alveg glænýir og þrælgóðir, sviðsmyndin flott, lýsing og tónlist smellpössuðu í stykkið. Umgjörðin er skrifstofa í fyrirtæki sem er í kreppu með ímynd sína og starfsfólkið þarf að bjarga málinu. Samtölin voru bara furðu eðlileg og fyndin en oft vill brenna við að samtöl í bókmenntum verði ótrúlega tilgerðarleg. Frábært leikrit!

 

23. mars 2007

Lífið er gott við okkur, allir hraustir og á góðum stað í lífinu. Fleiri mættu þó koma í heimsókn, m.a.s. óboðnir.

 

15. mars 007

Aldrei hefði ég trúað því að undratækið Escariorium lavator gæti sparað svo mikinn tíma, rex og pex og almenn leiðindi við heimilisstörfin. Græjan var sett í samband rétt fyrir jólin og síðan er sælan endalaus. Önnur undragræja kom upp úr jólapakka frá elskunni honum Arnþóri Brynjarssyni og nú þykjumst við hjónaleysin vel tækjum búin til framtíðar. Þetta tæki býður upp á endalausa möguleika við matseld á t.d. góðu kjöti, marineruðum fiski, alls konar samlokum, ávöxtum og grænmeti. Svo lekur fitan öll í mjóan dall svo hægt er að súpa hana sér.

 

12. febrúar 2007 Leikur að læra

Frúin er í námi samhliða starfi, mannauðsstjórnun í endumenntun, HÍ. Ég hef setið sveitt í vinnurétti og gruflað í lögum um uppsagnarfrest, fæðingarorlof og veikindarétt, fjallað um skipulagsheildir, vinnusálfræði, frammistöðumat, fyrirtækjamenningu o.fl. Þetta er algjörlega nýtt sjónarhorn á marga hluti fyrir mér og ég hef reynt að þetta nýtist mér vel. Og það besta er að ég hef kynnst mörgu skemmtilegu fólki í náminu. Óska hér með eftir safaríkum hugmyndum að lokaverkefni, sem getur verið annað hvort fræðileg úttekt eða hagnýtt viðfangsefni tengt vinnustað.

 

Lauk nýlega við Tryggðapant eftir Auði Jónsdóttur, mjög flott bók þar sem aðalsöguhetjan Gísela er e-s konar tákngervingur fyrir afstöðu þjóðar sem tekur á móti innflytjendum. Vekur til umhugsunar og ýtir við manni. Lauk einnig við Sendiherrann hans Braga um daginn, listilega skrifuð og íronísk, sögulok leita enn á mig - eru þau hluti af skrifum Sturlu eða "raunveruleg"? Bíð spennt eftir framhaldi. Renndi í gegnum Frankenstein, frábær þýðing Böðvars Guðmundssonar og gullfallegar myndir. Hvað er betra en liggja og lesa góða bók?

 

8. febrúar 2007 - ja hérna

Allt meinhægt, jólin afstaðin, þorrablótin að baki, árshátíðir i undirbúningi... Þjóðmálin á furðulegri leið: maturinn hækkar áður en hann lækkar, íbúðalánið hækkar jafnmikið og greitt er af því, börn og fíklar sæta misþyrmingum (ekkert nýtt í því, af hverju kemur það fólki á óvart?), gamlingjar finnast löngu látinir í íbúðarholum sínum. En ástin og kærleikurinn lifa!

 

Zagreb - sól og sæla

 

10. 10. 2006 Við skelltum okkur til Zagreb í Króatíu á dögunum. Með í för voru samstarfsmenn Brynjars hjá Eggerti Kristjánssyni ehf. Reyndust þeir hinir mestu djammarar og djúsboltar. Zagreb er falleg borg, orðin mjög vestræn, efnahagur almennings fer batnandi sem lýsir sér m.a. í því að fólk er farið að kaupa sér bíla í ríkari mæli í stað þess að ferðast með hinum frábæru sporvögnum. Yngra fólkið, bæði karlar og konur, klæðir sig afar smart, auk þess eru nær allir með sólgleraugu frá Prada eða DG. Veitingastaðir eru á hverju horni, þjónustan er alúðleg og maturinn ríkulegur og góður, engin skreytt níska að hætti franska eldhússins, heldur þýsk áhrif sem birtast m.a. í þykku snitzeli og djúpsteiktum kartöflum. Sums staðar má sjá leifar frá valdatíð fyrrum kommúnistastjórnar, allmargar himinháar og forljótar blokkir í ömurlegum hverfum, í einni þeirra búa 6000 manns! Einnig hafa Króatar nýlega dregið fram styttur af mikilmennum 19. aldarinnar sem geymdar voru í kjöllurum (þær sem ekki voru eyðilagðar á kommúnistatímabilinu) og plantað þeim niður í gullfallegum almenningsgörðum (sjá mynd). Allt verðlag í Zagreb er mjög hagstætt, bæði leður og gull á gjafverði. Reisan var hin skemmtilegasta í hvívetna og alveg ótrúlega þægilegt að fljúga beint með Flugleiðum. Og ekki spillti fyrir að á laugardeginum áttum við hjónaleysin afmæli!

 

29. ágúst 2006

Brynjar hefur opnað síðu á Flickr.com, þar sem hægt er að skoða myndir sem hann hefur tekið undanfarið. Slóðin er: http://www.flickr.com/photos/valkyr.

 

13. ágúst 2006 Vamos a la playa

Við erum komin heim frá hinni fögru kanaríeyju, Tenerife, þar sem við dvöldum í hálfan mánuð í vellystingum. Við bjuggum á hóteli sem heitir Parque Santiago III, það er stórt íbúðahótel á besta stað í bænum. Þar fór einkar vel um okkur, íbúðin björt og svöl með stórum svölum og markísum til varnar hitanum, gaseldavél, snyrtiborði sem kom sér vel undir allar frábæru sólarvarnartúburnar frá Nuskin) og pínulitlu sjónvarpi. Sólin skein alla daga, hitinn fór aldrei undir 30 stig yfir daginn en mild hafgolan lék um okkur og kældi okkur mátulega niður. Skemmtilegt götulíf ásamt frábærum veitingastöðum og góðu verði á ljósmyndavörum og raftækjum að ógleymdri stórkostlegri náttúrufegurð eyjarinnar gerðu ferðina afar ánægjulega (sjá myndasafn).  Farin var pílagrímsferð í bílaleigubíl frá þarlendri bílaleigu (35 evrur á dag, bensínlítrinn á 58 evrur) á hæsta fjallstind Spánar, El Teide (sem er 3718 m hátt). Ekki var farið á tindinn sjálfan þar sem röðin í kláfinn sem flytur ferðalangana þangað náði niður hálfa fjallshlíðina og mjakaðist afar löturhægt í sólarhitanum. Þess í stað var ekið um nágrennið, nesti maulað, dáðst að stórbrotinni náttúrunni og svingað á þröngum sveitavegum milli lítilla þorpa í snarbröttum fjallshlíðum. Draumurinn er að fara aftur til Tenerife á eigin vegum síðar til að stunda ritstörf, taka ljósmyndir og búa í litlu húsi í fjöllunum í amk mánuð. Matur og vín eru á viðráðanlegu verði, 5 kjúllabringur kosta 5 evrur og sæmileg rauðvínsflaska (Senario de Llanos, Valdepenas, gran reserva 1999) kostar tæpar fjórar evrur. Hægt að lifa heldur betur góðu lífi á þessum veitingum í fjallakofa fjarri skarkala heimsins.

 

 

Símamynd (ekki Reuter) úr flugvélinni á heimleið

 

4.júlí 2006 Ferðast í huganum

Sumarfríið mitt hófst á mánudaginn en það gleymdist að láta veðurstofuna vita. Hætt var við útilegu um síðustu helgi vegna kuldaþræsings. Því sit ég nú og les Ferðabók Tómasar Sæmundssonar í fjórða sinn:

 

"Þegar við höfðum nú skoðað þetta og heldur með hraða að við ekki þyrftum að halda of lengi vagninum okkar snérum við heimleiðis. Fór hann þá að segja okkur ýmisligar kátligar frásagnir og sagðist hönum vel, því hann hefir líkliga verið búinn að segja frá þeim nokkrum sinnum áður. Létum við okkur það vel lynda; var þá sjálfsagt að hann varð að fara hægt á grjótinu svo við heyrðum, og stillti nú svo til að þegar við komum heim voru komnar 2 eður 3 mínútur yfir hinn ákveðna tíma. Kvað hann þá upp að við borguðum hinn byrjaða tíma með, sem við höfðum ætlað að varast. Sannaði hann þá, og með hægð, tilkall sitt með konungligri reglugjörð sinni prentaðri sem hann hafði í barmi sér, og tjáði þá eigi í móti að mæla, og urðum við að gjalda tæpan ríxdal í sögulaun" (bls 184).

 

12. maí 2006

Vorið er komið og grundirnar gróa. Aspirnar fyrir utan eru orðnar laufgaðar, rósarunninn farinn að bruma, kettir eru á kreiki og kosningar í nánd. Í sumarbústað ma og pa er búið að tengja pott og brátt kemur í ljós hvort rafmagnspottar standast samanburð við hefðbundna potta. Þangað til er hægt að dunda sér við að finna út úr því hvaða kvikmyndastjörnu maður líkist mest. Skv. vísindalegum mælingum líkist ég mest Demi Moore, Justin Timberlake og Audrey Hepburn auk þess sem andlitsfallið og brosið minnir á Sharon Stone en nefið er augljóslega komið frá Celine Dion eða Glenn Close. Ekki leiðum að líkjast.

 

Síðustu daga er ég búin að lesa þrjár bækur sem eru frábærar: Sumarljós og svo kemur nóttin eftir Jón Kalmann, Steintré eftir Gyrði Elíasson og Hrafninn eftir Vilborgu Davíðsdóttur. Íslenskar bókmenntir rokka!

 

Í dag var til grafar borinn Stefán Karlsson (1928-2006), mikilvirtur fræðimaður, spekingur og mannvinur. Hann kenndi mér handritalestur í HÍ, einstakur kennari og karakter. Látinn er einnig Eiríkur Hreinn Finnbogason en hann var stundum prófdómari í munnlegum íslenskuprófum í HÍ. Hann var snyrtimenni, með mikið nef og íhugult augnaráð.

 

14. apríl Legið í leti

Í gærkveldi horfðum við á amerísku útgáfuna af Pride and Prejudice með Matthew Macfayden og Keira Knightley í aðalhlutverkum. Hvað vakti eiginlega fyrir þeim sem gerðu þessa mynd? Þetta er ekta vellu-Hollywood-útgáfa sem kemst ekki með tær þar sem bresku þættirnir frá 1995 hafa hæla. Efnið er útþynnt og ekkert nýtt í framsetningu þess. Elizabeth er horuð og gelgjuleg sem hin síflissandi Keira, séra Collins er ekki nema skuggamynd hjá  snilldartúlkun Davids Bamber (sem nú leikur Ciceró í ROME) og Donald gamli Sutherland er meira að segja hálfhallærislegur. Macfayden kemst auðvitað ekki í hálfkvisti við Colin Firth fyrir utan það að í amerísku myndinni er engin skyrtusena. Það er ógleymanlegt atriði í bresku þáttaröðinni þegar Darcy/Firth skolar af sér ferðarykið í vatninu við Pemberley-setur og blaut skyrtan límist við bringu hans, blautt og liðað hárið, feimið brosið... ótrúlega eggjandi hvernig  testósterónið ólgar og bullar undir bældu yfirborðinu. Í bíómyndinni er illa farið með  klassískan öndvegis efnivið og í lokin útskýrir Elizabeth m.a.s. fyrir föður sínum hvernig standi á hrokanum og hleypidómunum í sögunni eins og áhorfendur séu algerlega skyni skroppnir.

 

Fleyg orð úr Pride and Prejuice

Samlede værker Colin Firth

Um Colin Firth

 

11. apríl Páskar

Dymbilvikan er kyrr og friðsöm og hentar vel til ferðalaga. Við ætlum e.t.v. að bregða undir okkur betri fætinum og fara til Akureyrar ef viðrar til skíðaiðkunar. Ef ekki verðum við mest undir sæng og maulum páskaegg.

Gleðilega páska!

 

3. apríl 2006 | Kántríhátíð

Lífið gengur sinn vanagang í Hrauntungunni. Steinunn fór á Kúrekumót í Hnausum í Vatnsdal dagana 25. - 26. mars en þar voru samankomnar hinar stórskemmtilegu Ásgarðsfrænkur, afkomendur Þuru í Ásgarði. Teknar voru myndir fram eftir kveldi og eru þær birtar hér þeim til hrellingar og öðrum til viðvörunar. Var þar mikið um dýrðir, að lokinni litun, plokkun, maska, krem- og naglameðferð var farið í gönguferð á glerhálum bökkum Blöndu, snarlað á Blönduósi og barist í ratleik Oddu sem fór fram í Þórdísarlundi. Barátta milli liðanna tveggja var bæði hörð og tvísýn og beittu menn öllum brögðum. Keppni í skeifukasti fór fram á Hnausahlaðinu í vetrarsólinni og móðurinn rann ekki af mönnum fyrr en í pílukastinu niðri í kjallara. Um kveldið var dýrindis kvöldverður framborinn og síðan kveikt upp í arni. Allir voru klæddir að hætti kúreka enda þema kvöldsins. Fram fór spurningakeppnin "Veistu eitthvað í þinn Hnaus" sló í gegn og að henni lokinni var stiginn villtur dans og slúðrað þess á milli. Stóð geimið fram á rauða nótt og var það mál manna að betra samkvæmi hefði ekki verið haldið þar í sveit í manna minnum.

 

 

 

27. mars 2006

Kl. 17:02, voru liðin 19 ár frá því lítill drengur, einkasonurinn, kom í heiminn við illan leik í stórhríð og stressi á FSA.

 

11. november 2005 | Fótaaðgerð

Húsfreyja hefur verið í lamasessi síðan 19. október. Þá fór hún í fótaaðgerð hjá Ragnari Jónssyni bæklunarlækni. Tekin voru bein við stóru tærnar á hvorum fæti (hallux valgus) og hefur hún ýmist verið rúmliggjandi eða hoppandi á hækjum síðan. Brynjar hefur verið hjúkrunarfræðingur, kokkur og einkabílstjóri og staðið sig með miklum sóma. Nú eru þjáningarnar brátt á enda og fyrirséð að keypt verða pæjustígvél í kassavís þegar frúin kemst á stjá.

 

7. oktober 2005 | Afmæli

Vogirnar sætu í Kópa-Voginum áttu afmæli! Nákvæmlega 42 ár síðan við sáumst fyrst, á FSA! Haldið var veglegt partí í tilefni dagsins þar sem vinum og vandamönnum var boðið. Létu gestir sér vel líka kruðerí frá kokkunum í Kryddi í tilveruna sem skolað var niður með hvít- og rauðvíni, eða gini í greip og undir það síðasta voru þeir kræfustu komnir í koníakið. S.s. almennilegt partí! Paparazzi var á staðnum, ekki missa af myndunum! Þegar hafa borist óskir um að sumar myndanna verði teknar út af vefnum en síðan okkar verður ekki ritskoðuð, lifi frelsið! Nú er bara að fara að plana næsta geim fyrir geimfara, kannski jólaboð eða áramótapartí?

 

28.-30. september 2005 | London

Við elskum að vera á ferð og flugi og þessa helgi brugðum  við okkur til Lundúnaborgar, þar sem forðum "með lastafans, lifði strákur slátrarans". Borgin er alveg afskaplega skemmtileg heim að sækja, þvílíkt fjölbreytt og iðandi mannlíf - eiginlega alltof mikið af fólki. Hírðumst á ljótu hóteli en bættum það upp með ást og rómantík. Fórum á eintóma frábæra veitingastaði en af bar japanski fusion staðurinn Zuma þar sem við fengum frábæran mat, alúðlega þjónustu, þrátt fyrir að vera í sveittum flíspeysum með innkaupapoka, og skemmtum okkur konunglega. Eitt besta hvítvín sem Brynjar hefur bragðað rann ljúflega niður með sushi-inu, Trinity Hill, Chardonnay 2002. Staðurinn fær algjörlega fimm stjörnur. Auðvitað var farið í London Eye, Rölt um Hyde Park og Camden en aðallega chillað í bókabúðum. Sjáið myndirnar!

 

1. september 2005 | Akureyri

Við skruppum á æskuslóðirnar um síðustu helgi. Höfðum leigt okkur bústað hjá K.Í. í Kjarnaskógi, með heitum, heitum potti og öllum græjum. Föstudagskvöldið var ofurrómantískt með nautakjöti, rauðvíni og kertaljósum en á laugardagsnóttina gistu Gunna systir og Halli og pabbi í bústaðnum og hrutu hvert í kapp við annað. Akureyri er fallegasti bær á landinu og svo er alltaf jafngaman að koma í langflottustu húsgagnabúðina: Húsgögnin heim! Enginn ættingi var heimsóttur í þessari ferð en menn geta átt von því að við dúkkum upp fyrir jólin, þegar nýi gervisnjórinn þekur hlíðar Hlíðarfjalls...

 
S T E I N U N N  I N G A

F. 7.10.1963

Vogin sem veit ekkert hvað hún vill

Fjölhæf

Fagurkeri

Ástrík

Kelin, svo kelin

 


Ungfrú Snæfellsnes 2005

Take this quiz at QuizGalaxy.com

Ég er mandla - ef marka má þessa vísindalegu könnun