Heim

Vefdagbók Ellu Stínu

Gleðilegt ár og takk fyrir gömlu árin. Það klingir í hestunum í eldhúsglugganum mínum. Ég er búin að hanga inni í allan dag og liggja í sófanum eða lesa eða fá mér kaffi og gera ekkert. Það er mín helsta áskorun í lífinu. Líka að fá að vera saklaus. Sakleysi er áskorun fyrir mig, því ég er með þrennt inní mér, þríeyki einsog allir í hinum kristna heimi og ekki bara kristna, barn, sjálfa mig og dómara. dómarinn dæmir mig alveg stöðugt. ég er sek ef ég ligg í sófanum, ef ég er að lesa ætti ég að vera gera eitthvað annað, ef ég vaska upp er það ekki nógu merkilegt, ef ég fer í sund ætti ég að ég veit ekki hvað, það er guði þóknanlegt að fara í sund, en guð hjálpi mér ef ég fer ekki í sund, ég er að spila beethoven fyrir heilabúið í mér, spilaði bréf til elísu sjö sinnum tilað heilabúið gæti raðast saman, ég lýsi yfir sakleysi mínu, ég er enn hætt að reykja en tygg einsog engill, já nú er ég bara engill. svo er ég að stressa mig á skólanum, á morgun er verkefni sem heitir Mínúta í helvíti. Og ég er búin að finna nokkur helvíti en mig langar ekki að sýna þau. Afhverju þarf ég alltaf að vera sýna eitthvað, ég er leikritaskáld svo aðrir, td. leikarar geti sýnt eitthvað. Sjáðu, sjáðu mig. Það er eina leiðin tilað elska mig. allt þetta áhorf, allt þetta gláp, einsog ég var að lesa um í Draumalandinu eftir Andra Snæ, áhorfið á framhlið Esjunnar er 100% sem þýðir að við getum reist álver bak við hana þarsem enginn sér, en þá er reykurinn kominn á framhliðina, ég er saklaust lítið lamb sem er að reyna að vera til. og það er svo kalt og dimmt út. ég elska lífið. og börnin. tengdabörnin. barnabörnin. vini mína. mömmu. systkini. og marga fleiri. og ég bað guð um að opna hjarta mitt í dag fyrir samúðinni.

2 Umsagnir:

Kl. 01:09 skrifaði stinacita:

takk fyrir að blogga ... og svo áttum við saman þessa stund í helvíti, mannstu. eina mínútu hvor

 
Kl. 14:57 skrifaði kristín:

og takk sömuleiðis fyrir öll gömlu árin ... lov you/kristín

 

Skrifaðu umsögn

<< Heim



Powered by Blogger

 

Heim Ferilskrá Rök og della Myndir
Það nýjasta Þýðingar Úr bókum Úr leikritum
Innilokun Teiknimyndir Fjölskyldan Linkar
Krítík Öræfin Ný barnasaga Ný skáldsaga
Elísabet Jökulsdóttir | ellastina@hotmail.com | Framnesvegi 56a | 101 Reykjavík | btnet.is/elisabetjokuls | s. 552 0834 | bókmenntir | deus