Heim

Vefdagbók Ellu Stínu

ÉG var að gefa út nýja bók í dag, eða kver, minningakver, um mig og pabba minn. Ég er mjög glöð og trúi varla að ég hafi gert þetta, þvi það er svona hálfur mánuður síðan ég ákvað þetta, þótt efnið hafi verið lengi tilbúið, eða ekki lengi, en lengi. Svo er ég hrikalega tóm, alveg með tóm ársins. Samt fékk ég tilfinningu um perlufesti þegar ég las bókina, einsog minningarnar væru perlufesti, - ætlaði að koma við hjá Garpi, hann ER BYRJAÐUR AÐ BÚA DRENGURINN, og svo er ógeðslega kalt úti og mér er kalt í lungunum, en ég er mjög ánægð með þetta kver. Ómar Ragnarsson er á fóninum, best að taka inn sængurnar, fer í Fljótshlíðina á morgun, ég elska mömmu, ég elska alla, börnin mín og barnabörnin, þetta eru ekki mín lokaorð, tengdabörnin litlu greyin líka, ha ha ha. Mig langar að byrja að skrifa, aumingja lungun í mér, þau eru svo köld, ég er kvefuð, ég er sem búin að vera lalbbandi í allan vetur, alltíeinu svona kalt í lungunum. Bókin heitir Ísbjörninn á Hótel Viktoría. Gjörið svo vel að panta eintak. Og MARÍA til hamingju með reykleysið. Ég er leið á tyggjóinu og er búin að biðja guð um að fá að verða frjáls manneskja, frá þessu nikótíni. Amen. Elísabet sæta krútt kveður í bili.



Powered by Blogger

 

Heim Ferilskrá Rök og della Myndir
Það nýjasta Þýðingar Úr bókum Úr leikritum
Innilokun Teiknimyndir Fjölskyldan Linkar
Krítík Öræfin Ný barnasaga Ný skáldsaga
Elísabet Jökulsdóttir | ellastina@hotmail.com | Framnesvegi 56a | 101 Reykjavík | btnet.is/elisabetjokuls | s. 552 0834 | bókmenntir | deus