Ég sá himinninn rifna sundur í nótt af norðurljósum og stjörnufansi. Þá var ég að keyra með vini mínum Bjarna á Selfossi sem rekur þar bókabúð og Sunnlenska. Við vorum að koma úr Fljótshlíðinni. Þar seldi ég ekki einustu bók. Ónei. En las upp og það var myrkur og ég fékk kjötsúpu. Illugi segir að þetta minningakver sé eitt af mínum betri verkum, ef ekki það besta. Hægt að treysta Illuga, hann notar aldrei stóru orðin nema núna semsagt. Já takk Illugi. En himinninn rifnaði í sundur og allar þessar stjörnur. Suðurlandið. Er annars byrjuð á nýrri bók. Og spila Ómar Ragnarsson. Það er enginn að lesa þetta blogg mitt. Það eru allir í jólaföndrinu, eða kannski er ég svona leiðinleg...:)Enn hætt að reykja. Níu vikur á mánudag inshallah. Fékk tilfelli yfir því að kverið mitt væri ekki innbundið í gull, pell og purpura. Fattaði svo, já fattaði að hún á einmitt að vera svona. Ég er þegar búin að fella eitt tár. Það var á Hellisheiðinni. Og hvað er að gerast með Ísland. Maður verður sennilega að hella sér aftur útí þessa baráttu. Hvar er feldurinn? En eldri borgarar og Framtíðarland. Þetta passar auðvitað. Gamla fólkið og börnin að bjóða fram. Ég sting uppá því að það verði bara sjö ára börn í sjö efstu sætum Framtíðarlandsins. Ég elska börn og gamalt fólk. Og ég elska Ísland. Ég er gamalt barn. Ég er með læk í lófanum og baldursbráarvönd í heilastað. Ég gæti alveg strax, það minnir mig á að ég hef þjáðst af þráhyggju uppá síðkastið að ég muni deyja í svefni, bara smá tilfinningatorg, þá er ég sennilega að bæla eitthvað, þráhyggjan blossar víst upp ef maður bælir eitthvað. Einsog bælið sitt. Bæ bæ.

1 Umsagnir:
Takk fyrir kveðjuna :) Þetta er ólýsanlega góð tilfinning að vera laus við þennan fjanda. Þegar tómleikinn kemur sem fer alltaf minnkandi þá anda ég rólega og hugsa um nikótín púkann sem er að svelta í hel. Vonandi gengur vel hjá þér að hætta með tyggjóið fljótlega. Þú ert sjálfsagt að verða tilbúin til þess fyrst þú ert að verða leið á tyggjóinu. Annars ertu ekki leiðinleg, þvert á móti en fólk er eflaust á fullu í jólaundirbúningi :) Hafðu það gott um jólin. Kær kveðja, María
Skrifaðu umsögn
<< Heim