Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja. Ég lít út einsog flugfreyja.
Eða það sagði vinkona mín Katrín Dagmar sem sá mig í sjónvarpinu síðasta mánudag en þá hafði ég verið reyklaus í 9 vikur. Svo þetta er nýjasta ljóðið mitt hér að ofan. Annars er vindur og ég vona að Garpur hafi ekki farið uppí Borgarfjörð, búin að hringja svo oft í hann í dag, kannski ég hringi einu sinni enn. Jökull í New York og Kristjón á Spáni. Ég á Framnesveginum. Og vindurinn hvín. Ég var að fatta að ég er búinn að fá leið á einu. Leiðinn hefur alltaf bjargað mér. Það tekur mig mörg ár að fá leið á hlutunum, en þá kemur leiðinn og umbreytir lífi mínu. Einsog þegar ég fékk leið á að lesa upp, þá kveikti ég í bókinni og las uppúr henni meðan hún brann. Og nú er soldið í uppsiglingu, ég er búin að fá leið á einu og þá fara STÓRKOSTLEGIR ATBURÐIR að gerast í lífi mínu. Kannski verður næst bók um þennan stórkostlega leiða. Mér finnst leiðinn alveg stórmerkilegur. Einsog hann er erfiður þegar hann birtist með alla sína hala. En ég vil vekja athygli að mér tókst að brjótast út úr Vængjahurðar-ástartóninum með ljóði sem ég birti 1. des.
Ég er búin að fá leið á þessu sem ég búin að fá leið á. Ég ætla að lifa. Og ég sé mig fyrir mér færa til veggi, ha ha ha. Hvað langar ykkur í í jólagjöf. Mig langar í rautt teppi á stofugólfið og ullarsokka og dvd-spilara og glös og glerskáp og ljóðabók eftir hannes og ingunni snædal og hvaðmeira? kjól og tónlist og strigaskó og svo ættir þú elsku Elísabet mín að leggjast í sófann í videógláp. Við elskum þig.

1 Umsagnir:
Vahá! Ég þurfti nú að horfa á þáttinn síðan á mánudaginn og mikið svakalega líturðu vel út. Þú hefur yngst um mörg ár og ert svo frískleg. Frábært! Góður árangur :) Kveðja María
Skrifaðu umsögn
<< Heim