ég veit að þjóðin er í öngviti af því ég hef ekki bloggað, stundum hefur tæknin ekki virkað, stundum gleymt því góðir hálsar. en búin að vera reyklaus í sex vikur. sl. mánudag. já. og alla vikuna. tygg mjög ástríðufullt og gáfulega. tygg og tygg. en þunglyndið hefur ekkert látið á sér kræla og ég vann stórkostlegt verk í skólanum sem heitir Vörðurinn og fávitinn, og mun það fara sigurför um heiminn. Ég er nú svo þreytt eftir það að ég væri til í að liggja í rúminu alla vikuna og láta gufa upp af huganum, það sem seig á hugarbotninn, láta það fljóta upp og mara svona á yfirborðinu. soldið hrædd við þetta þunglyndi að það komi aftur, en hvað gerir maður ekki tilað hræða sig. HLAKKA svo til þegar skólinn verður búinn. aðdáendur minir eru að reyna að fá mig til að gefa út bók tilað halda uppi jólastemmningunni. en hvað verður þá um mig. ég er að hugsa um að skrifa mundu töfrana og byrja bara í kvöld. svo þarf ég að skrifa um Nornina í hverfinu, skila vinnubók og greinargerð. Hausinn á mér er einhverstaðar allt annarstaðar og kannski líka hjartað. og þá er bara að tala við guð.

0 Umsagnir:
Skrifaðu umsögn
<< Heim