Heim

Vefdagbók Ellu Stínu

fimm vikur reyklausar í gær. og ég gleymdi að blogga því. frábært. dimmt og snjór og hláka að koma. búin að vera í skólanum frá klukkan átta, var að koma heim, fór líka á aafund, leiddi fundinn, hellti uppá kaffi, og dansaði dans í lokuðu herbergi, já viti menn, fyrirlestur og sviðssetning á fimmtudag, gjörningur á laugardag. áðan var ég í bað og hugsaði hvernig líður mér og fann það ekki. þá hlustaði ég á regnið. þá fann ég að ég var hrædd. þegar ég heyrði í heiminum fyrir utan fann ég hvernig mér leið. heimurinn í höfðinu á mér er alltaf að plata mig. ég spurði óttann: hvað ætlar þú að gera. tortíma þér, sagði óttann. þá bað ég guð að taka óttann og leið betur og óttinn var farinn. svona er guð góður. ég er að prófa eitthvað nýtt í gjörningnum. held ég. fyrir mig. kannski er það ekki málið. heldur fara eftir reglunum. þetta er nú einu sinni listin. ég hengdi upp jólaskraut í gær, seríu í gluggann minn og jólatréð sem jökull saumaði, snilldarverk, og svo hengdi ég upp kúlur í eldhúsið í kvöld, þetta geri ég tilað berjast á móti jólakvíðanum. ákvað þetta þegar ég las blogg tengdadóttur minnar hennar kristínar um að hún væri svoleiðis að jólaföndraði alla daga. ég sakna barnabarnanna. takk. svo bar ég á mig fullt af kremum, augnkrem, næturkrem, hnetusmjör, handkrem, en guð sagði mér að frekar bera á mig krem en fara skrifa fyrirlestur um tjekov. horfði annars á chaplin í gær og fékk tár í augun.



Powered by Blogger

 

Heim Ferilskrá Rök og della Myndir
Það nýjasta Þýðingar Úr bókum Úr leikritum
Innilokun Teiknimyndir Fjölskyldan Linkar
Krítík Öræfin Ný barnasaga Ný skáldsaga
Elísabet Jökulsdóttir | ellastina@hotmail.com | Framnesvegi 56a | 101 Reykjavík | btnet.is/elisabetjokuls | s. 552 0834 | bókmenntir | deus