|
![]() |
|
|
Um okkur:
María Óskarsdóttir Uppáhalds maturinn minn eins og margra annarra, var ristað brauð með osti og kaffi með sykri og mjólk. Ég skildi síðan ekkert í því af hverju ég var alltaf svona slöpp og þreytt. Ég taldi mig vera komna með sjúkdóminn síþreytu sem engin vissi nákvæmlega af hverju stafaði. Árið 1994 var ég að horfa á þátt í sjónvarpinu þar sem Guðrún Bergmann stóð upp og sagðist vera með candida, ég varð forvitin og fór því á fyrirlestur hjá henni þar sem ég spurði nánar út í candida. Hún benti mér á að fara á námskeið. Þar var mér bent á að ég þyrfti að sleppa öllum sykri, hvítu hveiti og geri. Ég reyndi þetta um tíma og komst að því að ég hafði litla stjórn þegar kom að þessum hörðu efnum. Ég leitaði mér síðan hjálpar hjá 12 spora samtökum sem hafa reynst mér ákaflega vel í þessum efnum. Ég heyrði fyrst um hráfæði 1999 og vakti það strax áhuga minn. Ég lærði að gera spírusafa (ensím safa) og er sá safi að mínu mati algjört kraftaverk. Árið 2001 var mér svo boðið á minn fyrsta hráfæðisfund. Það varð mér uppljómun. Ég las líka fyrstu bókina eftir Victoriu Boutenko sem heldur úti vefsíðunni www.rawfamily.com. Ég prófaði mig aðeins áfram með hráfæðið en fór samt ekki 100% á það fyrr en nú í sumar 2004 eftir námskeiðið hjá Victoriu. Eftir það hefur orkan mín aldrei verið betri eða meiri. Ýmis einkenni hafa horfið og ég er sem endurbætt manneskja.
Ósk Óskarsdóttir Mig hefur dreymt um að hætta að reykja. Þegar ég hef reynt það, eins og til dæmis fyrir ári síðan, hef ég ávallt fitnað um allt að 10 kíló. Ég vissi því að ef ég gerði ekki eitthvað varðandi mataræði mitt færi þetta á sömu leið. Meltingin hefur einnig valdið mér verulegum vandræðum. Ég hef verið áhugamanneskja um heilsufæði í mörg ár og trúað því að hægt sé að fá öll næringarefni úr matnum. Ég byrjaði fyrst að elda baunarétti fyrir yfir 20 árum síðan en ég var púuð niður af fjölskyldunni fyrir það. Ég vann af og til á Grænum kosti í nokkur ár og borðaði þá nær eingöngu grænmetisfæði og leið þá aðeins betur. Þegar ég heyrði fyrst um hráfæði, fyrir nokkrum árum, vakti það strax áhuga minn. Ég las því bókina um hráfæði eftir Boutenko fjölskylduna. Þegar fjölskyldan kom í sumar og hélt fyrirlestur um hráfæði fór ég á fundinn. Eftir það byrjaði ég á hráfæði og er síðan eins og ný manneskja. Ýmis húðvandamál sem ég var með hafa batnað. |