Hvað er hráfæði

Uppskriftir

Námskeið

Gestabók

Linkar

Um okkur

Aðalsíða

 

Sósur og Súpur

 

Gúrkusalsa
1 stór       gúrka
3             þroskaðir tómatar
1             lítill rauðlaukur
1/2           græn paprika
1/4           gul paprika
1             sítróna
3 msk.     olífuolía
1/2 - 1      steinseljuknippi, saxað
3 - 4 msk          graslaukur (má nota vorlauk)
3/4 tsk.    nýmalaður pipar
salt

Tómatarnir fræhreinsaðir og skornir í litla bita, ásamt gúrkunni, paprikunni og rauðlauknum.
Safinn kreistur úr sítrónunni og hristur saman við olíu, steinselju, graslauk, pipar og salt. Hellt yfir grænmetið og blandað vel. Látið standa nokkra stund

Tómatbasilsósa
2 bollar nýir, saxaðir tómatar, blandaðir í blandara
Bæta eftirfarandi út í:
2-4 hvítlauksrif
3/4 bolli söxuð, ný basilika
safi úr 1 meðalstórri sítrónu
2 matskeiðar ólífuolía
4 döðlur (eða nokkrar rúsínur)
1 bolli sólþurrkaðir tómatar (sem búið er að leggja í bleyti)

Gott út á spaghetti úr kúrbít eða rófum, eða sem ídýfa, eða þynnt út með dálitlu vatni og notað sem sósa
 

Avocado majones
1 bolli furuhnetur
1 stórt avocado
1 msk sítrónusafi
1 msk eplaedik
1 tsk sjávarsalt
6 döðlur (útbleyttar)
½-1 hvítlauksrif
Maukað í blandara