|
Meðlæti
Villihrísgrjón
Svört villihrísgrjón (ekki eru öll svört hrísgrjón villihrísgrjón, þau réttu
heita wild rice á ensku) lögð í bleyti í þrjá sólarhringa, skipt um vatn á
þeim tvisvar á dag. Svolítil tamarisósa sett út á. Borið á borð. Þegar
hrísgrjónin eru tilbúin, er hægt að hella vel af þeim og geyma þau í ísskáp
í nokkra daga.
Marineraðir sveppir
Nýir sveppir skornir niður. Ólífuolía og tamarisósa hrist saman, ca til
helminga af hvoru. Hellt út á, ekki of mikið af þessu. Hrært vel saman við
sveppina svo að sósa sé á þeim allsstaðar. Borið á borð. Geymist í nokkra
daga í ísskáp. Hellið sósunni af og geymist í nokkra dag í ískáp í t.d. aðra rétti.
"Tuna Salad"
4 bollar möndlur
5 stilkar sellerí, í sneiðum
6-7 vorlaukar, í sneiðum
2 msk steinselja
5 msk sítrónusafi
1 hvítlauksrif
x cayenna pipar
1½ -2 tsk sjávarsalt
1-2 blöð nori þang, bleytt örsnöggt og saxað (eða 1/3 bolli af þínu uppáhalds þangi, útbleyttu)
Malið möndlurnar fínt. Blandið öllum innihaldsefnunum saman í skál og helmingi af Avocado majonesinu (hér að neðan) eða meiru, ef þörf krefur. Gott á tómat- eða gúrkusneið, saladblað eða "brauð og kex"
Blómkáls Pilaf
Frábært sem kalt salad eitt og sér, eða lítillega hitað (115°F), sem meðlæti með öðru. Fyrir 4-6 manns.Hér er blómkál notað í stað hinna hefðbundnu hrísgrjóna í pilafið. Rétturinn verður ekki ósvipað og couscous. (Lára: Ég lít á þessa uppskrift sem grunn, því hún er frekar hlutlaus í bragði og útliti. Mér finnst gott að bæta sólþurrkuðum tómötum út í, ólífum og rauðri papriku, og/eða öðru smáttskornu fersku eða þurrkuðu grænmeti - bæði fyrir bragð og útlit.)
Efni
1 blómkálshöfuð
1-2 tsk. furuhnetur
2-3 msk. kaldhreinsuð olía eða smjör (raw butter)
½ lítill saxaður hvítur laukur
½ tsk grænmetissalt
¾ tsk malað laukduft
¾ tsk malað hvítlauksduft
1-2 tsk pesto seasoning (eða 3-4 tsk pesto og minni olíu)
Aðferð
Blandið saman olíu, lauk og kryddi. Malið pípublómin (flowerets) smátt, notið til þess "S" lagaða hnífinn í matvinnsluvélinni. Bætið síðan olíublöndunni ásamt furuhnetunum út í og gefið lauknum (og öðru grænmeti ef vill) tækifæri til að verða álíka smágert og blómkálið. Vermið lítillega og berið fram á hituðum diskum eða kælið ef vill.
Karabískur villihrísgrjónaréttur
1 bolli villihrísgjrón
1 laukur millistór, saxaður
2 stórir tómatar
2 stórar rauðar papríkur
2 stórar gular papríkur
1-1 1/2 bolli ferkst kókoskjöt rifið
2/3 bolli kókosrjómi
2 tsk cilli duft
1-4 pressuð hvítlauksrif
2 tsk koríander duft
1 tsk malað brún sinnepsfræ
1-2 tsk rifin lime börkur
safi úr 1 lime
Tamarí eða salt eftir smekk
Leggið hrísgrjónin í bleyti í 36-48 tíma, skipta um vatn 2 sinnum látið spíra í 2-6 daga, skolað 2 á dag.Þegar hrísgrjónin eru tilbúin, skerið laukinn, tómatana, og rauðu og gulu paprikurnar, og rífið kókósinn, blandið saman í stórri skál, og bætið hrísgrjónunum útí.l í annari skál blandið saman kókosrjómanum, lime safa og berki, pressuðum hvítlauk, kryddi og salti. Hellið yfir hrísgrjónin og grænmetið og blandið vel. Skammtur fyrir 4. Geymist 2-3 daga í ísskáp.
Kasjúblómkáls "kartöflu" stappa
1 haus blómkál
1 poki kasjúhnetur (ca 180 grömm)
Maukað saman í safapressunni (það er líka hægt að nota matvinnsluvél en þá verður kássan grófari). Borið fram.
„Ofnbakað“ rótargrænmeti
Notið þunnt skorið grænmeti svo sem gulrætur, sætar kartöflur, lauk, nípur, rauðrófur, rófur og sellerirót.
6 bollar niðurskorið rótargrænmeti
2 mtsk hunang (eða hlynsýróp, það er ekki hrátt)
3 mtsk tamarí sojasósa
2 mtsk extra-virgin olífuolía
1 mtsk timían nýtt eða þurrkað
2,5 cm engiferrót (safinn kreistur úr rótinni)
safi úr hálfri sítrónu
Setjið rótargrænmetið og afganginn af uppskriftinni í stóra skál og blandið vel. Setjið á plötu og inn í þurrkofn við 115 ºF (46 °C). Þurrkið í 7 tíma eða lengur.
|