|
![]() |
|
|
Eftirréttir Hnetu-eggjapúns ÍSfyrir 3 1 b útvatnaðar möndlur (½ b þurrkaðar möndlur lagðar í bleyti í 8-12 t) ¼ b furuhnetur (ekki lagðar í bleyti) 2 ½ b vatn Malið hneturnar í matvinnsluvél með vatni. Síið í gegnum grisjupoka (ostapoka).
3 stk frosnir bananar 5 stk döðlur steinlausar, (lagðar í bleyti og notið vatnið af þeim í uppskr. hér að ofan). ½ tsk múskat 1 tsk vanilluextract eða 1/16 vanillustaung (skafið svörtu fræin úr miðjunni og notið þau) 2 tsk hörfræ eða möndluolía smá salt Blandið öllu vel saman og berið fram strax. Ef útbúa á fyrir tímann, notið þá ófrysta banana og kælið, þetta mun geymast í 1-2 daga í ískáp.
BerjakakanBotn: 1,5 bl möndlur 3/4 bl rússínur 1 msk carob vanilluduft Krem: frosin ber hunang
Konfekt kúlur
Bananakókospæjuna (eitt af mínu uppáhaldi) Fylling 1. Mixið möndlur og síðan döðlur og rúsínur og hrærið saman og þrýstið í botn á eldföstu kringlóttu formi. 2. maukið 2 banana og annað sem fer í fyllinguna (fyrir utan skreytinguna). 3. skerið hina 2 bananana í sneiðar og setjið ofan á botninn, skellið síðan maukinu yfir. Gott að kæla vel í kæli áður en skreytingin er sett yfir. JólasælgætiAlls kyns þurrkaðir ávextir lagðir í bleyti yfir nótt. Ég notaði apríkósur, döðlur, rúsinur. Þetta er í ca jöfnum hlutföllum (heldur minna af döðlum ) ca, 2 dl af hverju. 2 dl af kashúhnetum vel maukað í matvinnsluvél Dágóður slatti af kókosmjöli (fer svona eftir því hversu þurrt maður vill hafa þetta og hve manni finnst kókosmjölið gott) ég notaði mikið af því. 1 –2 matskeiðar af carob dufti (heilsusamlega kókóinu) Ávöxtunum er skellt í matvinnsluvélina (látið renna vel af þeim safann) og maukað, síðan læt ég hneturnar saman við og kókosmjölið og mauka allt vel. Þetta þarf að vera það þurrt að auðvelt sé að móta kúlur með teskeið úr þessu. Velt upp úr kókosmjöli (ef manni finnst það ekki of mikið af því góða).
Ís úr Champion juicer Frosnir banar Frosinn jarðaber Frosinn Ananas Ávextirnir eru settir til skiptis í juicerinn og út kemur dýrindis ís.
Piparmyntu nammi Myntulag: 3 bl kókósmjöl 1/3 bl hunang (eða hlynsíróp en það er ekki hrátt) 1/2 tsk mintu etract eða 3 dropa piparmintu essential olía
Súkkulaði eða caroblag 3 bl kókósmjöl 1/3 bl hunang (eða hlynsíróp en það er ekki hrátt) 1/8 bl hrátt kakó eð hrátt carob, bætið við eins og þurfa þykir 1/2 tsk vanillu duft 1/8 tsk sjávarsalt Blandið saman fyrstu þremur bollunum af kókós í matvinnsluvél þangað til að kókósmjölið er orðið að smjöri. Passið samt að blanda ekki svo mikið að kókósið skili sig. Gott er að hafa góðan blandara eins og Vita mix, þó svo þú eigir ekki Vita mix þá getið þið samt gert þessa uppskrift en þurfið kannski að gera helmingi minni skammt í einu. Setjið kókóshnetu-massann í skál, bætið við sætuefni og myntu, notið sleif til að blanda saman. Setjið til hliðar. Blandið saman kókósmjölið fyrir súkkulaði lagið. Setjið kókósmassann í skál og setjið afganginn af uppskriftinni saman við og blandið með höndunum. Skiptið súkkulaðihlutanum í 2 hluta. Takið fyrri partinn og þrýstið honum í aflangt form. Kælið í frysti í 5 mínútur. Takið ½ af piparmyntu blönduna og þrýstið í formið ofan á brúna lagið. Síðan súkkulaði og loks piparmyntulag.
|
||