|
Hvað er hráfæði
Uppskriftir
Námskeið
Gestabók
Linkar
Um okkur
Aðalsíða |
|
Brauð og álegg
Ólífu kæfa
100 g furuhnetur
25 g
basilika
2 stk hvítlauksrif
½ dl
sítrónusafi
2-3 msk ólífuolía
1 stk avókadó
1,5 bl grænar
ólífur (steinlausar) úr Heilsuhúsinu bara í salti og vatni
½ - 1 tsk salt
Mala fyrst hnetur og síðan öllu bætt út í mixer og kæfan er tilbúin.
Kæfa með sólþurrkuðum tómötum
125 g sólþurrkaðir
tómatar fást í Yggdrasill. Lagðir í bleyti í 6 - 12 tíma
70 g
furuhnetur
1 stk hvítlauksrif
¾ dl
ólífuolía
1 msk sítrónusafi
½ bl
rúsínur (gott að leggja í bleyti í smá tíma)
salt og pipar eftir smekk
Heslihnetukæfa
150 g heslihnetur
(má líka nota mönduhrat)
½ búnt steinselja
½ búnt fersk
basilika
½ - 1 dl rúsínur
1 tsk timjan
1 tsk sjávarsalt
2 stk hvítlauksrif
½ dl
sítrónusafi
1 dl
ólífuolía
1 dl
nýkreistur appelsínusafi
Brauð þurrkað á miðstöðvarofni
Möndluhrat frá 200 gr af möndlum
1,5 bl hörfræ,
malað í kaffikvörn
0,5 bl sólblómafræ,
fínmöluð
sjávarsalt
vatn
ég var með fínsaxaðan lauk í annarri tegundinni en ekkert í hinni.
N.B. ég á ekki þurrkofn svo ég smyr þessu á bakka með smjörpappír
sem passar á miðstöðvarofninn minn og geymi í 12-24 tíma.
Grænar þurrkökur
Eitthvað grænt t.d spínat, sellerí, púrra, kúrbítur er sett í jöfnum hlutföllum í mixara og maukað vel, ólífuolía og einhver vökvi (t.d. kornsafi eða vatn) til að það maukist betur). Í þetta er svo látið alls kyns krydd, ég set mikið af karrýinu góða, koríander, kummin, o.fl af indverskum kryddum. Ég spara ekkert kryddið til að fá þetta bragðmikið. Þetta er maukað vel, mótað í buff og látið þorna í ofni í ca sólarhring eða lengur, uns það er vel þurrt. Þessar kökur eru tilvaldar til að hafa með sér á fjöll; geymast endalaust, léttar og pakkast vel. Þær eru nokkuð sterkar á bragðið og þess vegna er gott að hafa eitthvað milt með eins og td. Salat, tómata og gúrkur (og svo ýmis konar paté sem eru mild á bragðið).
Bóhveiti/hvítlaukskexinu
300 gr bóghveiti spírað í einn dag
2 msk cashew hnetur malaðar fínt
2 msk hörfræ möluð fínt
4 hvítlauksrif söxuð
2 msk soya sósa, eða tamari(saltari)
lítið búnt af steinselju
2 msk vatn
Allt sett í matvinnsluvél (nema vatnið sem er sett út í síðast) og blandað vel í þykkt deig, Vatninu blandað út
að hluta eða öllu ef það þarf. Blöndunni er síðan smurt á teflon plötu frekar þunnt . Ég skipti þeim í hæfileg kex
með plastsleikjunni. Þurrkað í ca 12 tíma , snúa þeim við eftir 6 tíma .
Frábær kæfa á brauð
gulrótarhrad
casuhnetur/möndlur
sítrónusafi
engifer
hvítlaukur
tamarí
|