Hvað er hráfæði

Uppskriftir

Námskeið

Gestabók

Linkar

Um okkur

Aðalsíða

 

Aðalréttir

 

Snittur

Mac paprikukæfa
1 bolli macadamia hnetur, malaðar
1/2 paprika, sett með í matvinnsluvélina þegar búið er að mala hneturnar.  Gúrka skorin í sneiðar, skeið af paprikukæfu sett út á, ólífa ofan á. Tilbúið! 

 

 

Grænt og gómsætt frá Gylfa

Súpa

grænar baunir (nota frosnar)

spínat 1 hnefi

safi af gulrótum

2-3 sellerý

Krydd:

laukur

rússínur

1-2 glös vatn

Buff grænt og sætt

100 gr.   möndlur

50 gr      valhnetur

50 gr      hestlihnetur

2 stk       gulrætur (eða hrat frá 3 stórum gulrótum)

1 1/2 stk sellerý stilka - ekki nota laufið

1 sneið    rauðlauk

1,5 cm    engifer

1 stk       hvítlauksrif

1,5 bl      grænar baunir (frostnar)

1 hnefa    rússunur

sjáfarsalt

olífuolía

Mala hnetur fyrst og sett í skál

Blanda allta annað saman og síðan sett í sömu skál, allt blandað saman og búið til buff. Hægt að borða beint eða þurrka.

Sólborgarar (úr bókinni The raw gourmet eftir Nomi Shannon)

3 msk      möluð hörfræ

6 msk      vatn

1 bolli       gulrótahrat

1 bolli       möluð sólblómafræ

1/2 bl       sellerí, fínskorið

6 msk      laukur, fínskorinn

2 msk      steinselja, fínskorin

2 msk      rauð paprika, fínskorin

2 msk      tamarisósa

Öllu blandað saman, formaðar bollur, þurrkaðar í 4 - 8 tíma.

Ég grófskar reyndar allt grænmetið og setti það í gegnum matvinnsluvélina.  Svo renndi ég öllu saman í gegnum safapressuna mína stillta á mauk þegar ég var búin að blanda því saman, til að það yrði fínna, en þetta þarf alls ekki.

 

Mýraberjaskonsurnar hennar Öllu (úr íslensku bókinni)

2 bollar     rifin epli

2 bollar     gulrótahrat

2 bollar     rúsínur eða saxaðar döðlur

1 bolli       mýraber, ný, frosin eða þurrkuð (cranberries)

2 msk      hunang

2 bollar     malaðar möndlur

1 bolli       hörfræ mixað í blandara með 1 bolla af vatni

1/4 bolli    ólífuolía

Blanda saman. Búa til bollur, þurrka í nokkra tíma.

Ég gleymdi að setja rúsínurnar út í og bjó í staðinn til döðlusultu úr döðlum og appelsínusafa og smurði ofan á. Ekki alveg eins gott, en sæmilegt.

 

Kasjúkássa:

1 poki kasjúhnetur
1 meðalstór blómkálshaus
Blómkálið skorið niður, allt sett í gegnum safapressuna (setja til skiptis  hnetur og blómkálsbúta) til að fá út fínt mauk. Líka hægt að nota matvinnsluvélina, en þá verður maukið ekki eins fínt. Hrært vel saman og borið á borð. Geymist í nokkra daga í ísskáp.

 

RÚLLUR (auglýsi hér eftir nafni á þennan ágæta rétt!)

 

Lufsubrauðið

Hörfræ (ca 2 dl) lagðir í bleyti yfir nótt eða uns þau eru límkennd og tolla næstum saman)

Slatti af kúmeni (eða kúmendufti)

Safi af döðlum (eða öðrum þurrkuðum ávöxtum sem maður hefur lagt í bleyti), nóg til að gera þetta vel blautt og þunnt. Þetta er sett í matvinnsluvél og maukað eins vel og kostur er. Breitt út á bökunarpappír og þurrkað í ca einn sólarhring í ofni.  Þegar þetta er þurrt er það klippt niður í ca 5x5cm nita. Paté-ið er síðan sett á og rúllað upp.

 

Paté-ið sem fer inn í rúllurnar:

1 hluti sólblómafræ

1 hluti hnetur (ég nota oftast kashú hnetur)

lagt í bleyti í safann af ólífum (þeim spönsku í dósunum í Nóatúni) í ca eina nótt (eða styttra ef það gleymist.

Safinn sigtaður frá og sett í matvinnsluvél ásamt dágóðum slatta af góðu indversku karrý (fer eftir smekk hve mikið bragð maður vill). Ég set gjarnan nokkrar ólífur með (ef ég er ekki búin úr dollunni þegar hér er komið sögu). Þetta er maukað uns það er mjúkt og fallegt áferðar. Pátéið er auðvitað gott án þess að það sé rúllað inn í hörfrælufsuna, t.d. með salati.

 

Hamingjupizza

25 cm (10 tommu pizza)

Þessi “Hamingjupizza” er mjög góð fyrir byrjendur. Við höfum heyrt að krökkum finnist þessi pizza betri en hefðbundnar.

Hægt er að gera þessa pizzu um hádegisbil svo hún sé tilbúin um kvöldmat.  Þá er mikilvægt að setja botninn í þurrkun um hádegi.

Klukkustund fyrir mat, skaltu búa til ostinn, tómatsósuna og grænmetið.  Berið fram mikið af grænu salati, auka tómata og laukhringi.

 

Grunnur:

400g    hveitikorn, spírað

2 stk    meðalstórir tómatar

½ stk    meðalstór laukur

6-8 stk sólþurrkaðir tómatar (gott að setja í beyti í 4 tímum áður)

10 stk   fersk basiliku lauf

1 msk    ítölsk kryddbanda

1 stk     hvítlauksrif

1/3  b   ólífuolía

 

Setjið öll innihaldsefnin í matvinnsluvél og blandið þar til deigið er orðið þétt í sér.  Ef deigið er of þykkt þá má bæta við auka tómötum.  Hellið deiginu í skál og hnoðið með höndunum.

Setjið deigið á plötu eða bakka og dreifið úr.  Mótið það annað hvort hringlaga eða ferkantað allt eftir því hvað ofninn leyfir.  Þjappið með hönd eða sleikju, besta þykktin er um 3-4 mm þykkt.

Þurrkið í þurrkofni á 95-110°F  eða á bakka á miðstöðvarofni í um það bil 4 klst, þar til yfirborðið er næstum þurrt, snúið þá pizzubotninum við og þurrkið þar til hann er þurr.  Sumir vilja hafa botninn þurran og stökkan en aðrir vilja hann linari, prófaðu þig áfram og finndu þitt uppáhald.

 

Ostur

2 b       hráar makadamia hnetur

2 b       kasjúhnetur (cashew)

1 stk     hvítlauksrif

safi úr 1-2 sítrónum fer eftir magni og sætleika

Blandið innihaldsefnunum vel saman í matvinnsluvél.

 

Tómatsósa

4-6 stk tómatar

4-6 stk sólþurrkaðir tómatar

1 stk     hvítlauksrif

½ stk    rauð paprika

1 tsk     ferskur engifer

Handfylli af fersku basilikulaufi

Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél.

 

Álegg (toppur á pizzu)

Þú getur valið um

Ferskar tómatsneiðar

Ferskar paprikusneiðar (rauðar, gular, appelsínugular)

Ferskir laukhringir

Svartar ólífur skornar í tvennt

Basilkulauf fínt skorin

Ítölskt kryddbanda (þurrkaðar jurtir)

Skorinn ananas

Spergilkál, skera blómin til helminga

Sveppir, ferskir eða marineraðir í ólívuolíu, hvítlauk og sítrónusafa, þurrkaðir eftir marineringu

og hvað annað sem ykkur finnst passa á pizzuna ykkar

 

Hvernig gera á pizzuna

1)      Dreifið jafnt úr “ostinum” yfir pizzubotninn.  Ef afgangur af ostinum, má setja hann á kex eða í salat.

2)    Setjið síðan tómatsósuna jafnt yfir ostinn.

3)    Látið uppáhalds grænmeti á pizzuna, yfirleitt byrjað á tómötum, svo laukhringjum, síðan papriku, ólífum og sveppum.

          Basilikum kemur svo og ítölsk krydd blanda.

4)    Berið síðan fram strax eða hitið lítillega  og berið fram heitt.  Hvort sem er smakkast hún frábærlega.

 

 

Betra en krabba kökur frá Maríu

gerir um 15 kökur

1 stk        rauð paprika í bitum

1 stk        kúrbítur í bitum

1 bl          gulrætur í bitum

1 bl          snjóbaunir

1 1/2 bl    furuhnetur

3/4 bl       möndur lagðar í bleyti yfir nótt

1 tsk        fersk engirfer rót

1/2 bl       kóriander

1/2 bl       vatn

 

Setjið papriku, kúrbít, gulrætur og snjóbaunir í matvinnsluvél með rifjárni.  Setjið grænmetið í sér skál og setjið S-blað í vélina.  Fínmalið furuhnetur, möndlur, engiferrót og kóríander. Bætið einnig vatni og salti út í.  Blandið síðan hentum og grænmeti saman og mótið glatta á plötu.  þurkið í um 12 tíma í þurkofni.

 

Samósur

2 bl         valhnetur lagðar í bleyti yfir nótt og þurkaðar þar til þær

               verða stökkar í um 12 tíma

2 bl         blómkál niðurkorið

1 stk       sæt kartöfla afhýdd og niðurskorinn

1/2 stk    laukur niðurskorinn

1 stk       kúrbítur niðurskorinn

1 stk       djús úr 1 sítrónu

2 tsk       karrý

2 rif         hvítlaukur

1/8 tsk    cayenne pipar

1/2 bl      vatn

1 bl         snjóbaunir eða 1 bl frosnar grænar baunir

 

Fínmalið valhnetur í matvinnsluvél og setjið til hliðar

Linsubollur
2 bollar möluð sólblómafræ
1 1/2 bolli spíraðar linsubaunir
4 gulrætur, malaðar
1 lítill laukur, malaður
4 stilkar sellerí, skornir smátt. Gott að taka ysta lagið utan af
2-3 hvítlauksrif, söxuð
2 graslaukar, saxaðir
4 matskeiðar sösuð steinselja
4 matskeiðar lítrónusafi
2 matskeiðar tamarisósa eða 1/2 teskeið sjávarsalt
1 matskeið kjúklingakrydd
2 matskeiðar nýtt oregano eða 1 tesk. þurrkað krydd

Setja allt í blandara og mauka saman. Getur þurft að skipta niður í fleiri en eina fyllingu. Búa til bollur, ca 1 cm á þykkt. Setja á netið í þurrkofninum (þarf ekki að nota teflonblöðin) og þurrka í 8-12 tíma.