|
![]() |
|
|
Námskeiðsdagskrá:
Matreiðslunámskeið í hráfæði. Á námskeiðinu verður farið í grunnþætti hráfæðis, hvað má borða og hvað ekki. Á námskeiðinu eru notuð heimilistæki sem eru til á flestum heimilum, einnig förum við yfir ýmis töfratæki sem eru oft í hráfæðiseldhúsum. Einnig er farið yfir mataráætlun og sýnikennsla í hristing (seik) og brauðgerð. Við matbúum síðan vegleg máltíð sem við borðum síðan í lok námskeiðsins. Námsgögn eru innifalin. Námskeiðið er eitt skipti og kostar 7.500 krónur. Skráning á næsta námskeið er í síma 899-9998 hjá Maríu eða í tölvupósti maria@lifandi.net. Athugið að takmarkaður sætafjöldi er á hvert námskeið svo best er að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti. Næstu námskeið eru þann 26. mars og annað þann 27. mars.
Stuðningshópar Skoðuð verða video, gerð matarplön og almennur stuðningur við að byrja á hráfæði. Léttar veitingar. Stuðningshóparnir hittast í 3 skipti og er eftir nánara samkomulagi. Hringdu og skráið ykkur í síma 899-9998 hjá Maríu, eða sendu tölvupóst á maria@lifandi.net . Kostnaður er 15.000 og er hámarks fjöldi 10 í stuðningshópunum.
Detox námskeið Nokkrar aðferðir verða skoðaðar til afeitrunar. Sýnd bæði tól og tæki til afeitrunar. Útbúin orkusúpa, farið yfir mátt hveitigrassins, og margt fleira verður skoðað. Spurðar verða spurningar eins og eru snyrtivörur nauðsýnlegar? Farið yfir sýrustig líkamans og nauðsýn þess að vera meðvitaður um það. Námskeiðið er 1 skipti. Hringdu og skráið ykkur í síma 899-9998 hjá Maríu, eða sendu tölvupóst á maria@lifandi.net . Kostnaður er 6.000 og er hámarks fjöldi 10 manns.
Súkkulaði námskeið Farið verður í gerð súkkulaðis úr hráu kakói. Temprun og konfektgerð. Tilvalið að læra og undirbúa jólin. Námskeiðið er eitt skipti. Hringdu og skráið ykkur í síma 899-9998 hjá Maríu, eða sendu tölvupóst á maria@lifandi.net . Kostnaður er 9.000 og er hámarks fjöldi 10 í stuðningshópunum.
Stuðningur Við bjóðum einnig upp á stuðning, ef þú ert að byrja á hráfæði og vilt hjálp þá erum við með ráðgjafatíma þar sem þú getur fengið leiðbeiningar og svör við spurningum þínum um hráfæði. Hringdu og pantaðu tíma í síma 899-9998 hjá Maríu, eða sendu tölvupóst á maria@lifandi.net
Fyrir saumaklúbba og smærri hópa Hefur þú áhuga á að fá fyrirlestur fyrir þinn saumaklúbb um hráfæði. Við bjóðum upp á fyrirlestur með smakki fyrir saumaklúbba. Hafið samband og við finnum tíma sem hentar hverjum og einum.
Nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar í símum 899-9998 eða í tölvupósti: maria@lifandi.net |