Hvað er hráfæði

Uppskriftir

Námskeið

Gestabók

Linkar

Um okkur

Aðalsíða

 

Hvað er hráfæði

Hráfæði er nokkuð byltingarkennt mataræði. Þeir sem eru á hráfæði borða einungis hrátt grænmeti, hráa ávexti, fræ, hnetur og sjávarþara. Ekki má hita matinn upp fyrir 48°C því við hitun skemmast ensímin í matnum. En við þurfum einmitt ensím til að melta matinn.  Ef við fáum ekki ensím úr matnum til að melta hann þá gengur líkaminn á sínar eigin ensímbirgðir sem eru takmarkaðar.

Fólk hefur náð ótrúlegum bata við að skipta yfir á þetta fæði, t.d. komist í kjörþyngd, fengið meiri orku, húðvandamál hafa horfið, túrverki minnkað og eins hefur fólk með ólæknandi sjúkdóma eins og krabbamein og eyðni fengið mikla hjálp. Ef þú ert í vafa þá er einfalt mál að prófa því það er alltaf hægt að byrja að borða hefðbundinn mat aftur. Við ráðleggjum þó að prófa í minnst 2 mánuði til að sjá árangur.

Þú þarft ekki að örvænta því það er hægt að búa til mjög ljúffengan mat úr þessu hráefni, málið er bara að læra það.

Þegar talað er um lifandi fæði er átt við að búið er að spíra korn, baunir eða hnetur.  Eins og allir vita er spírað korn uppspretta lífsins.

Kannski hefur þú lesandi góður einhvern tímann verið á 100% hráfæði? Við sem vorum svo heppin að vera eingöngu á móðurmjólkinni fyrstu mánuðina höfum fengið að reyna það.

Ef þú ert enn í vafa um hvort hægt sé að vera eingöngu á hráfæði getur þú spurt sjálfan þig, hvaða annað dýr í heiminum borðar eldaðan mat? Margir spyrja líka, „Fáum við næga orku úr þessum mat?“ Þá spyrjum við á móti, Guttormur (naut) er á 100% hráfæði og er um 1 tonn á þyngd, hann er samt ekkert slappur, ætli hann fái næga orku úr matnum sínum?

Hver er svo sem munurinn á ristaðri möndlu og óristaðri? Jú ef þú stingur þeirri óristuðu í mold sprettur upp fallegt möndlutré en hin breytist bara í mold, það er sem sagt líf í þeirri óristuðu meðan hin er dauð. Við sem erum á hráfæði borðum ekki dauðan mat, svo einfalt er það.

Við fáum gjarnan þessar spurningar:  (Algengar spurningar:)

Færðu nóg kalk? Já við drekkum mikið af möndlumjólk og í henni er 2x meira kalk en í venjulegri mjólk auk þess erum við viss um að við nýtum kalkið úr möndlumjólkinni.

Færðu nóg prótein? Já við fáum prótein úr spírum, hnetum og grænmeti. Það er reyndar svo að það er mun meira prótein í hráfæðis mat heldur en þeim hefðbundna.

Færðu næg vítamín? Já svo sannarlega, maturinn er stútfullur af vítamínum, allt ferskt. Er ekki alltaf verið að segja okkur að borða meira grænmeti, sérstaklega grænmetið sem er litríkt? Við spyrjum því: er einhvertíman hægt að borða of mikð af þessu holla og góða grænmeti?

Færðu næga orku? Já eins og áður sagði, þá eykst orkan og svefnþörfin minnkar.